Um okkur
Patch, please. varð til út frá þeirri hugmynd að húðumhirða megi vera einföld. Við erum íslenskt vörumerki stofnað af mæðgum sem hafa áhuga á húðumhirðu og viljum við bjóða upp á vörur sem eru einfaldar og þægilegar í notkun og gera daglega húðumhirðu aðeins skemmtilegri.
Með Patch, please. viljum við minna á að það er alveg í lagi að taka smá pásu, slaka á og gefa sér tíma fyrir sjálfan sig, það þarf ekki sérstakt tilefni.
Plástrarnir okkar eru úr 100% medical grade sílikoni og hafa farið í gegnum öryggismat fyrir snyrtivörur og verið skráðir í evrópsku CPNP snyrtivörugáttina.